Stærðfræði
Vídeó/Text

Upplegg

HLUTI 1 KAFLI 1

Þannig nærðu árangri

Hér finnur þú svör við algengum spurningum um námskeiðið.

Vikulegt efni

Í hverri viku opnast nýtt efni.  Þið fáið tilkynningu í tölvupósti svo endilega fylgjast vel með þar og passa að póstarnir frá mér (kolbeinn@betranam.is) fari ekki í ruslmöppu.

Hvað er kennt?

Við kennum almenn brot og algebru frá A-Ö.  Frá upphafi til enda (sé miðað við 7.-10. bekk).


Hvernig er kennt?

Í hverri viku færðu nýtt efni, 2 kafla í almennum brotum og 2 kafla í algebru.  Hverjum hluta fylgja 20 æfingadæmi og þótt best sé að reikna þau öll þá er það að sjálfsögðu undir nemandanum komið.  Við mælum þó með að reikna alltaf eitthvað, þótt ekki séu nema 5-10 dæmi.


Þarf ég alltaf að reikna allt?

Við mælum með því að þú farir í gegnum efnið, og fylgir vikuplaninu.  Ekki sleppa heilu köflunum því þegar efnið þyngist þá er hætt við að þú strandir.

Undantekningar

  • Ef aðstæður eru þannig, þá getur þú valið að reikna bara almennu brotin eða bara algebruna.  En fylgdu þá efninu alla leið.
  • Ef efnið er mjög auðvelt, þá getur þú reiknað færri æfingadæmi, t.d. 5 í stað 20.

Hvað ef ég dregst aftur úr?

Best er að ljúka efni hverrar viku áður en nýtt efni berst.  Þannig stillir þú álaginu í hóf.  En ef þú dregst aftur úr þá gerist í sjálfu sér ekki neitt, þú getur alltaf unnið upp eldra efni því það lokast ekki meðan áskrift er opin.  Hver og einn getur farið á sínum hraða.


Hve langan tíma tekur þetta?

Í heildina máttu reikna með 12 vikum eða u.þ.b. 3 mánuðum.  En þú ferð á þínum hraða svo tíminn gæti verið lengri.  Þetta gerir nemendum sem eru eftir á, mögulegt að vinna það upp og jafnvel ná forskoti á samnemendur sína.


Hve lengi hef ég aðgang að efninu?

Þú hefur fullan aðgang að öllu efni sem komið er meðan áskrift er virk.


Hraðastjórnun myndspilara

Stilltu hraðann

Ef þér finnst það betra, þá getur þú aukið hraða spilarans með því að smella á "tannhjólið" í hægra horni hans og velja "speed control".


Hvernig hætti ég?

Námskeiðið lokast ekki af sjálfu sér, né rennur það út.  Þú hefur fullan aðgang að öllu efni eins lengi og áskrift er virk. Þú getur lokað áskrift á "Mín síða" eða sent tölvupóst á kolbeinn@betranam.is og óskað eftir lokun. 

Gangi þér vel!

Pen